Af hverju ég valdi þjálfun?
Ég heiti Eva Dís, menntaður einkaþjálfari frá Einkaþjálfaraskóla World Class og með áralanga reynslu í heilsu- og líkamsræktargeiranum. Síðustu fimm ár hef ég starfað sem hóptímakennari hjá World Class, þar sem ég hef hjálpað fjölmörgum einstaklingum að ná sínum markmiðum í styrktar- og þolþjálfun.
Ég hef alla tíð haft mikla þörf fyrir hreyfingu og hef sennilega prófað allar íþróttir sem hafa verið í boði. Ég er mikil pepp- og stemningskona. Árið 2020 ákvað ég að snúa ástríðu minni fyrir hreyfingu í starfsferil. Ég byrjaði sem hóptímakennari hjá World Class, sem ég hreinlega elska, og í kjölfarið tók ég skrefið lengra og fór í Einkaþjálfaraskólann þeirra árið 2022.
Ég hef mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki að ná árangri í hreyfingu og trúi því að rétt nálgun, stuðningur og persónuleg aðlögun skipti öllu máli þegar kemur að heilsu og vellíðan. Þess vegna stofnaði ég EVAD.IS til að veita faglega og sérsniðna þjálfun sem hentar þínu lífi, hvar sem þú ert.
Hvað býð ég upp á?
✔ Persónulega þjálfun í gegnum fjarþjálfun – sérsniðin áætlun sem hentar þínum markmiðum.
✔ Æfingaprógröm fyrir öll getustigi – hvort sem þú ert byrjandi eða vanur æfingum.
✔ Styrktar- og þolþjálfun – til að byggja upp sterkari og heilbrigðari líkama.
✔ Næringarleiðbeiningar – til að tryggja að þú nærir þig rétt fyrir hámarksárangur.
✔ Stöðugan stuðning og hvatningu – ég er hér til að leiðbeina og styðja þig í hverju skrefi.
Ef þú ert tilbúin(n) að taka næsta skref í þinni líkamsræktar- og heilsuferð, þá er EVAD.IS fyrir þig. Skráðu þig í dag og við vinnum saman að þínum markmiðum!